Fréttir: Október 2018

Hver á að vera málsvari móður jarðar?

18.10.2018
  Dr. Andrés Arnalds, verkefnisstjóri og fyrrum fagmálastjóri Landgræðslunnar, flytur fyrirlestur í Hallgrímskirkju á sunnudaginn kemur, 21. október, kl. 09:30. Fyrirlesturinn ber heitið: „Hver á að vera málsvari móður jarðar? – Lífsgildi, ábyrgð og umhverfisvernd. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, flytur ávarp. Fyrirlesturinn...

Kyrrðarstund

17.10.2018
Fimmtudaginn 18. október er kyrrðarstund í hádeginu kl. 12. Stundin er í hálftíma, ljúft orgelspil og stutt hugleiðing ásamt bæn. Dr. Sigurður Árni Þórðarson leiðir stundina og organisti er Hörður Áskelsson. Eftir kyrrðarstundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.

Auður Bjarnadóttir um Biblíuna

16.10.2018
Hvaða minningar á Auður Bjarnadóttir, jógakennari og leikstjóri, um Biblíuna? Hvernig metur hún gildi hennar?  Áhrifasaga Biblíunnar er mikilfengleg. Hvað í Biblíunni skiptir nútímafólk máli og hvað gegnir hlutverki að í menningu samtíðar? Í haust mun hópur fólks tala um Biblíuna í Hallgrímskirkju, rifja upp persónulegar minningar og ræða um...

Árdegismessa

15.10.2018
Á miðvikudagsmorgnum kl. 8 eru árdegismessur í Hallgrímskirkju. Dr. Sigurður Árni Þórðarson þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Eftir messu er morgunverður og kaffi. Allir hjartanlega velkomnir, góð leið til þess að byrja daginn snemma.

Krílasálmar

15.10.2018
Krílasálmar eru tónlistarstundir fyrir börn á aldrinum 3-18 mánaða og foreldra þeirra, þar sem tónlist er notuð til að styrkja tengslamyndun og örva þroska barnanna.  Það er sungið fyrir þau og spilað á hin ýmsu hljóðfæri, þeim vaggað, dansað með þeim og á þann hátt fá þau upplifun af tónlistinni sem hefur góð áhrif á tilfinninga- og...

Fyrirbænamessa í Suðursal

15.10.2018
Á þriðjudögum kl. 10.30 – 12 er fyrirbænamessa í Suðursalnum. Næsta þriðjudag mun dr. Sigurður Árni Þórðarson leiða stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja í kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.

Söngsveitin Ægisif : Rússneskar kórperlur í Hallgrímskirkju 13. október kl 17:00-18:00

13.10.2018
Vegna fjölda áskorana hefur söngsveitin Ægisif ákveðið að endurflytja tónleika sem haldnir voru fyrir tveimur árum síðan og að þessu sinni verða þeir endurfluttir í Hallgrímskirkju þann 13. október kl.17:00 - 18:00. Tónleikarnir eru styrktir af Tónlistarsjóði. Fluttar verða rússneskar kórperlur eftir Alexander Gretchaninov, Pavel Chesnokov, Alfred...

Heimsókn frá Framkvæmdasýslunni

12.10.2018
Nokkrir starfsmenn Framkvæmdasýslu ríkisins ákváðu að gerast ferðamenn á Íslandi í hádeginu í dag og heimsóttu í því skyni Hallgrímskirkju. Þau mættu með sitt eigið kakó, sykurpúða og rjóma eins og góðum ferðamönnum sæmir og kíktu svo upp í turn. Við þökkum nágrönnum okkar í Framkvæmdasýslunni fyrir skemmtilega heimsókn og bjóðum þau...

Messa og barnastarf sunnudaginn 14. október kl. 11

11.10.2018
Messa og barnastarf  Sunnudaginn 14. október kl. 11 Tuttugasti sunnudagur eftir þrenningarhátíð Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Hópur messuþjóna aðstoðar. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón barnastarfs Inga Harðardóttir, Karítas Hrundar Pálsdóttir og...