Fréttir: Október 2018

Kyrrðarstund

11.10.2018
Fimmtudaginn 11. október er kyrrðarstund í hádeginu kl. 12. Stundin er í hálftíma, ljúft orgelspil og stutt hugleiðing ásamt bæn. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina og organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir kyrrðarstundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.

Gunnar Hersveinn um Biblíuna

09.10.2018
Hvaða minningar á Gunnar Hersveinn, heimspekingur, um Biblíuna? Hvernig metur hann gildi hennar?  Áhrifasaga Biblíunnar er mikilfengleg. Hvað í Biblíunni skiptir nútímafólk máli og hvað gegnir hlutverki að í menningu samtíðar? Í haust mun hópur fólks tala um Biblíuna í Hallgrímskirkju, rifja upp persónulegar minningar og ræða um nútímagildi...

Guð blessi Ísland

07.10.2018
http://www.sigurdurarni.is/2018/10/07/gud-blessi-island-2/

Messa og barnastarf sunnudaginn 7. október kl. 11

04.10.2018
Messa og barnastarf í Hallgrímskirkju Sunnudaginn 7. október kl. 12 19. sunnudagur eftir þrenningarhátíð Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Hópur messuþjóna aðstoðar. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Hörður Áskelsson. Umsjón barnastarfs Ragnheiður Bjarnadóttir og Rósa...

Kyrrðarstund fimmtudaginn 4. október kl. 12

03.10.2018
Fimmtudaginn 4. október er kyrrðarstund í hádeginu kl. 12. Stundin er í hálftíma, ljúft orgelspil og stutt hugleiðing ásamt bæn. Dr. Sigurður Árni Þórðarson leiðir stundina og organisti er Hörður Áskelsson. Eftir kyrrðarstundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.

Þakkir fyrir frábært samstarf

02.10.2018
Þúsundir koma í Hallgrímskirkju á hverju degi ársins. Það þarf lipurt snerpufólk til að mæta litríkum hópi gesta með alls konar væntingar. Það var mikið happ að Birna Hjaltadóttir kom til starfa í Hallgrímskirkju þegar ferðamennirnir fóru að rata upp á Skólavörðuholt. Birna tók á móti ölllum með bros á vör og ekki skemmdi fyrir að hún kann...

Hvað finnst Ragnari Bragasyni, leikstjóra, um Biblíuna?

01.10.2018
Hver er fyrsta minningin um Biblíuna? Eða sú skemmtilegasta? Biblían kemur víða við sögu og flestir eiga sér einhverja persónulega minningu um hana. Persónur eða viðburðir Biblíunnar bergmála einnig í bókmenntum, listum og sögu heimsins. Áhrifasaga Biblíunnar er mikilfengleg. En áherslur samfélaga breytast og spurt er: Hvað í Biblíunni skiptir...

Krílasálmar

01.10.2018
Krílasálmar eru alla þriðjudaga kl. 11:30 - 12:30. Krílasálmar eru tónlistarstundir fyrir börn á aldrinum 3-18 mánaða og foreldra þeirra, þar sem tónlist er notuð til að styrkja tengslamyndun og örva þroska barnanna. Það er sungið fyrir þau og spilað á hin ýmsu hljóðfæri, þeim vaggað, dansað með þeim og á þann hátt fá þau upplifun af...

Vetraropnun

01.10.2018
Við minnum á að vetraropnunin hjá okkur hefst að nýju í dag, mánudaginn 1. október. Þá er kirkjan opin frá kl. 9-17 og turninn kl. 9-16.30.