Fréttir: Maí 2018

Messa og barnastarf

11.05.2018
Messa og barnastarf sunnudaginn 13. maí Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Dómkórinn í Tønsberg syngur. Stjórnandi er Nina T. Karlsen. Ritningarlestrar: Esk 37.26-28. 1Pét 4.7-11. Guðspjall: Jóh 15.26-16.4.

Messa á Uppstigningardag kl. 11.

08.05.2018
Messa á Uppstigningardag 10. maí kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og Inga Harðardóttir prédika og þjóna fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.   Ekki verður barnastarf í messunni á Uppstigningardag. Eftir messu verður farið í...

Orgeltónleikar 9. maí klukkan 17.00

08.05.2018
Elísabet Þórðardóttir, nemandi í orgelleik við Tónskóla Þjóðkirkjunar spilar á tónleikum í Hallgrímskirkju 9. maí klukkan 17.00. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.

Orgeltónleikar í dag kl. 17.00

08.05.2018
  Kitty Kovács nemandi í orgelleik í Tónskóla Þjóðkirkjunnar leikur verk eftir Bach, Rachmaninoff, Cochereau og Tournemire í dag kl. 17.00. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.

Hádegisbæn

07.05.2018
    Í hádeginu í dag leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir bænastund hjá Maríumyndinni inn í kirkju. Stundin hefst kl. 12.10. Verið hjartanlega velkomin.

Krílasálmar - Tvö skipti eftir

04.05.2018
          Tvö skipti eftir af Krílasálmum þetta vorið mánudaginn 7. maí kl. 12:30-13:30 og mánudaginn 14. maí kl. 12:30-13:30 Krílasálmar eru tónlistarstundir fyrir börn á aldrinum 3-18 mánaða og foreldra þeirra, þar sem tónlist er notuð til að styrkja tengslamyndun og örva þroska barnanna.  Það er sungið fyrir þau og spilað á hin ýmsu...

Synjun - listamannaspjall í anddyri Hallgrímskirkju 6. maí kl 17

04.05.2018
Synjun, sýning Kristínar Reynisdóttur sem sett var upp í anddyri Hallgrímskirkju 25. febrúar, lýkur 13. maí. Innsetning Kristínar í Hallgrímskirkju er auðmjúk og fínleg, en jafnframt margræð, þar sem hún ávarpar þann aukna straum flóttamanna sem verið hefur að undanförnu til Íslands, og þeirri miskunnarlausu ákörðum stjórnvalda að vísa...

Messa og barnastarf kl. 11

03.05.2018
Messa og barnastarf sunnudaginn 6. maí kl. 11 Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón með barnastarfi hafa Inga Harðardóttir og Ragnheiður Bjarnadóttir.

Draumurinn - tónleikar í Hallgrímskirkju

01.05.2018
DRAUMURINN / THE DREAM IMMIGRATION TURNÉE TO REYKJAVIK AND SEATTLE USA IN MAY 2018 Listvinafélag Hallgrímskirkju 36. starfsár / The Hallgrimskirkja friends of the arts society TÓNLEIKAR Í HALLGRÍMSKIRKJU - CONCERT IN HALLGRIMSKIRKJA FIMMTUDAGINN 3. MAÍ 2018 KL. 20- THURSDAY MAY 3 at 8 PM VOKAL NORD FRÁ TROMSÖ NOREGI - VOKAL NORD  FROM...