Fréttir: Mars 2019

Fyrirbænamessa

04.03.2019
Þriðjudaginn 5. febrúar kl. 10.30 – 12 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Á morgun mun dr. Sigurður Árni Þórðarson leiða stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja í kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.

Sr. Jakob Jónsson

04.03.2019
Í bréfi Jakobs Jónssonar frá 9. janúar 1984 sagði hann: „Ræður mínar eru ... misjafnar að gæðum ... og við endurlestur segir maður stundum við sjálfan sig eins og Pinochio í Pleasure Island: „Did that come out of me?“ Og hvað var það sem kom út úr honum, hvað hugsaði hann og skrifaði, sagði og prédikaði? Sigurður Árni Þórðarson ræddi um...

Hádegisbæn

03.03.2019
Á mánudögum kl. 12:15 leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir bænastund í hádeginu. Stundin er hægra megin við altarið hjá myndinni af Maríu. Allir velkomnir.

Æskulýðsguðþjónusta 3. mars kl. 11

01.03.2019
Næsta sunnudag er æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar haldinn hátíðlegur og þá verða börn og unglingar í stóru hlutverki í fjölskylduguðsþjónustunni kl. 11 sem verður með óhefðbundnu sniði. Fermingarbörnin ætla að bera inn ljós, lesa ritningarlestur, bænir, og flytja hugleiðingu auk þess sem þau eru búin að koma með tillögur að barnasöngvum og sálmum....

Hvernig mæltist prestinum?

01.03.2019
Næstu sunnudagsmorgna til 7. apríl á slaginu kl. 10 verða haldnir fræðslumorgnar um prédikanir prestanna í Hallgrímskirkju. Að þessu sinni verður fyrirlesturinn haldinn í Norðursal vegna æskulýðsmessu. Nánari upplýsingar í auglýsingu. Heitt á könnunni og kleinur. Verið hjartanlega velkomin.

Hádegistónleikar - Orgel Matinée

01.03.2019
Laugardaginn 2. mars kl. 12 verða hádegistónleikar í Hallgrímskirkju. Björn Steinar Sólbergsson, organisti Hallgrímskirkju leikur verk eftir Johann Sebastian Bach og Sigfrid Karg-Elert. Í upphafi tónleikanna verður stutt helgistund í umsjá dr. Sigurðar Árna Þórðarsonar. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Hérna fyrir neðan er skráin í...