Fréttir: Júlí 2020

Messa kl. 11.00 sunnudaginn 12. júlí

11.07.2020
Sunnudaginn 12. júlí er messa kl. 11.00. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum.  Organisti er Tómas Guðni Eggertsson og félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða safnaðarsöng og flytja tónlist. Prédikunarefni dagsins og guðspjall er frásagan af Jesú sem hittir fiskimennina Símon Pétur og félaga hans, bræðurna Jakob og...

Hádegismessa miðvikudaginn 8. júlí kl 12

05.07.2020
Miðvikudagsmessa er núna á nýjum tíma eða  í hádeginu og hefst klukkan 12.  Miðvikudaginn 8. júlí, mun sr. Irma Sjöfn þjóna og flytja hugvekju. Kaffisopi í Suðursal eftir messu. Verið velkomin

Kári Þormar leikur á þriðju tónleikum ORGELSUMARS 2020 fimmtudaginn 9. júlí kl. 12.30

04.07.2020
Listvinafélag Hallgrímskirkju stendur fyrir hádegistónleikum með íslenskum organistum alla fimmtudaga í sumar frá 25. júní – 20. ágúst undir heitinu ORGELSUMAR Í HALLGRÍMSKIRKJU 2020 , en vegna heimsfaraldursins varð að fresta Alþjóðlegu Orgelsumri 2020 í Hallgrímskirkju. Íslenskir organistar munu sjá til þess að Klais-orgel Hallgrímskirkju...

Mikill samdráttur í rekstri Hallgrímskirkju

03.07.2020
Fjárhagsleg innkoma og starfsemi Hallgrímskirkju hefur á undanförnum árum byggst að mestu leyti á tekjum af ferðamönnum sem heimsótt hafa kirkjuna. Í kjölfar COVID-19 faraldursins hefur sú innkoma hrunið og óvíst hvenær úr rætist. Við þessar aðstæður hefur kirkjunni verið óhjákvæmilegt að ráðast í niðurskurð útgjalda, frestun framkvæmda,...

Sunnudagurinn 5. júlí í Hallgrímskirkju

02.07.2020
Messa klukkan 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Kaffisopi í Suðursal eftir messu.

Orgelsumar í Hallgrímskirkju 2. júlí kl. 12.30

01.07.2020
Erla Rut Káradóttir leikur á öðrum tónleikum Orgelsumars 2020 fimmtudaginn 2. júlí kl. 12.30 Listvinafélag Hallgrímskirkju stendur fyrir hádegistónleikum með íslenskum organistum alla fimmtudaga í sumar frá 25. júní – 20. ágúst undir heitinu Orgelsumar í Hallgrímskirkju 2020 , en vegna heimsfaraldursins varð að fresta Alþjóðlegu Orgelsumri 2020...