Fréttir: September 2020

Vatnið og tuttugasta og þyrsta öldin

16.09.2020
Framsaga SÁÞ í Hallgrímskirkju 15. september, 2020. Hljóðskrá er að baki þessari smellu. Af hverju að tala um vatn í kirkju? Hefur vatn eitthvað með trú að gera? Af hverju ætti prestur að tala um vatn? Eigum við ekki að láta stjórnmála- og vísindamennina ákveða nýtingu vatns? Jú, þeir eiga að koma að málum. En vatnsnotkun varðar okkur öll....

Hreinsun

16.09.2020
Dr. Jón Ásgeir Sigurvinsson prédikaði í Hallgrímskirkju 13. september 2020. Hér má lesa prédikun hans sem var útlegging á Esekíel 47.8-9. „Og þá verður saltvatnið heilnæmt og allt sem lifir og hrærist, hvar svo sem fljótið streymir, mun lifa." Í okkar íslenska samhengi kemur manni kannski fyrst í hug, þegar talað er um vatn, að það sé nóg af...

Vatnið - þriðjudagshádegi kl. 12,05

14.09.2020
Allt líf þarfnast vatns. Vatnsvernd er stórmál í nútímanum. Hver á vatnið og hver ætti að eiga vatnið? Sigurður Árni Þórðarson, Hallgrímskirkjuprestur, hefur mikinn áhuga á vatni. Á fjórum þriðjudögum í hádeginu talar hann um vatn í veröldinni, menningu, trúarbrögðum og framtíð. Tímabil sköpunarverksins í Hallgrímskirkju verður 13. september...

Bænastundir á mánudögum kl 12

14.09.2020
Sigrún V. Ásgeirsdóttir  mun hafa bænastundir  við  kapelluna  í Hallgrímskirkju á mánudögum kl. 12. Allir eru hjartanlega velkomnir

Blátt tímabil í Hallgrímskirkju

12.09.2020
Margar kirkjudeildir heimsins beina athygli á haustin að náttúrunni sem Guð hefur skapað. September og fyrri hluti október er tími sköpunarverksins í þjóðkirkjunni. Í Hallgrímskirkju hefst þetta tímabil með guðsþjónustunni 13. september og lýkur með helgihaldinu 11. október. Auk áherslu á ríkidæmi lífríkisins og mikilvægi þess að við verndum...

Guðsþjónustan og barnastarf 13. september

11.09.2020
Guðsþjónusta í Hallgrímskirkju kl. 11. Sr. Sigurður Árni Þórðarson þjónar fyrir altari og messuþjónar aðstoða. Dr. Jón Ásgeir Sigurvinsson, héraðsprestur, prédikar, og talar um vatnsflaum í Gamla testamentinu. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða safnaðarsöng. Í lok guðsþjónustu verður safnað fé til...

Hádegisbænir, miðvikudag, fimmtudag og föstudag kl. 12

07.09.2020
Helgistundir eru í Hallgrímskirkju kl. 12 á miðvikudögum, fimmtudögum og föstudögum. Miðvikudaginn 9. september sér hópur sóknarfólks um helgihaldið ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur. Kaffisopi í Suðursal eftir guðsþjónustuna á miðvikudegi, en virðum sóttvarnarreglur, s.s. fjarlægðarmörk. Helgistund á fimmtudeginum 10. september og...

Guðsþjónustur sunnudaginn 6. september kl. 11 og 13

05.09.2020
Séra Sigurður Árni Þórðarson og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjóna fyrir altari ásamt Kristnýju Rós Gústafsdóttur djákna, sem einnig flytur hugleiðingu. Messuþjónar aðstoða. Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgel. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Forspil Introduction-Choral – Menuet, úr Suite Gothique Léon Boëllmann Fermd...

Mótettukórinn, Bach og Hallgrímur

05.09.2020
Klassíkin okkar var á dagskrá sjónvarpsins 4. september. Sinfóníuhljómsveitin flutti verk úr ýmsum áttum og söngvararnir komu úr ýmsum tónlistargáttum líka. Eini kórinn sem söng var Mótettukór Hallgrímskirkju og söng Ruht wohl úr Jóhannesarpassíu Bachs. Og söng með ástríðu sem var hrífandi. Passían var fyrst flutt á Íslandi á stríðsárunum,...