Fréttir: September 2020

Fyrirbænastund í Hallgrímskirkju föstudaginn 2. október kl. 12

30.09.2020
Föstudaginn 2. október verður haldinn fyrirbænastund við Ljósberann í Hallgrímskirkju kl. 12

Kyrrðarstund í Hallgrímskirkju fimmtudaginn 1. október kl. 12

30.09.2020
Kyrrðarstund verður  í Hallgrímskirkju fimmtudaginn 1. október kl. 12. Séra Sigurður Árni Þórðarsson prestur flytur  íhugun og stýrir bænagerð í upphafi stundarinnar og gegnir prestþjónustunni. Þennan fimmtudag leikur Björn Steinar Sólbergsson á orgel. Eftir kyrrðarstund verða veitingar í Suðursal Hallgrímskirkju.  

Samtal um vatn: Konan og Kristur

28.09.2020
Fyrir nokkrum árum var ég á ferð með fjölskyldu minni í Austur-Afríku. Í Eþíópíu og Keníu sá ég margar konur á ferð með vatnsbrúsa á höfðum. Margar þurftu að ganga langa leið og burðast með mikið vatn. Ef konurnar voru einhleypar þurftu þær ekki að fara nema eina ferð á dag en ef þær áttu fyrir heimili að sjá urðu þær að fara fleiri en...

Bænastundir á mánudögum kl. 12

28.09.2020
Sigrún V. Ásgeirsdóttir  mun hafa bænastundir  við  kapelluna  í Hallgrímskirkju á mánudögum kl. 12. Allir eru hjartanlega velkomnir

Guðsþjónusta og barnastarf sunnudaginn 27. september kl. 11

25.09.2020
    Guðsþjónusta og barnastarf í Hallgrímskirkju sunnudaginn 27. september kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða safnaðarsöng. Kristný Rós Gústafsdóttir og Ragnheiður Bjarnadóttir hafa umsjón með...

Örkin og unglingar

24.09.2020
Æskulýðsstarfið Örkin og unglingar er komið á fullt skrið í Hallgrímskirkju. Starfið fer vel af stað og það er góð þátttaka. Starfið er fyrir unglinga í 8.-10. bekk og það er á fimmtudagskvöldum kl. 19:30-21:30 í Suðursal kirkjunnar. Það er nýr starfsmaður í æskulýðsstarfinu, en hún heitir Hilda María Sigurðardóttir og er guðfræðinemandi við...

Þriðjudagsfundur um vatnið í Biblíunni kl. 12.05

21.09.2020
Biblían er blaut Hádegisfundur þriðjudaginn 22. september kl. 12.05. Sr. Sigurður Árni Þórðarson fjallar um vatnið í veröldinni. Vatn flæðir um kafla Biblíunnar og áin Jórdan er stórtákn. Hún afmarkaði hinn biblíulega heim. Þau sem fóru yfir ána fóru úr einum tíma í annan. Jórdan tengist lykilviðburðum Biblíunnar. Jesús fór að Jórdan til að...

Guðsþjónusta og barnastarf sunnudaginn 20. september kl. 11

18.09.2020
Guðsþjónusta og barnastarf í Hallgrímskirkju sunnudaginn 20 september kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða safnaðarsöng. Ragnheiður Bjarnadóttir hefur umsjón með barnastarfinu. Í lok guðsþjónustu...

Kyrrðarstundir á fimmtudögum - fyrirbænir á föstudögum

16.09.2020
Frá og með 17. september verða kyrrðarstundir í Hallgrímskirkju á fimmtudögum kl. 12. Prestar kirkjunnar íhuga og stýra bænagerð í upphafi stundarinnar. Þennan fimmtudag leikur Björn Steinar Sólbergsson á orgelið og Sigurður Árni Þórðarson gegnir prestsþjónustunni. Eftir kyrrðarstund verða veitingar í Suðursal Hallgrímskirkju. Föstudaginn 18....