Minning
14.02.2024
Sr. Karl Sigurbjörnsson biskup lést þann 12. febrúar á gjörgæsludeild Landspítalans í Reykjavík, 77 ára að aldri.
Ævi hans er samofin sögu Hallgrímssafnaðar og byggingu Hallgrímskirkju, og sú saga nær allt til bernskuára þegar faðir hans, Sigurbjörn Einarsson, var prestur hér í sókninni og framundan var bygging Hallgrímskirkju. Sú saga hófst...