Fréttir: Maí 2017

Sumarið er komið!

30.05.2017
Sumarið er framundan með sól og gleði. Eins og vanalega í Hallgrímskirkju þá leggjast sum störf í dvala yfir sumarið en annað heldur áfram. Kirkjan er opinn alla daga kl. 9 - 21 en turninn er opinn frá kl. 9 - 20.30. Að venju eru kyrrðarstundir á fimmtudögum, kórastörf, æskulýðsstörf í sumarfrí en hefjast að nýju í haust. Þriðjudagar...

Síðasta hádegisbænin fyrir sumarfrí

29.05.2017
Flesta mánudaga yfir árið er hádegisbænastund í kirkjunni kl. 12.15. Stundin er í umsjón hennar Sigrúnar Ásgeirsdóttur og er hún ávallt hjá Maríumyndinni inn í kirkju, vinstra meginn við altarið. Allir velkomnir.

Ensk messa 28. maí kl. 14 / English service 28th May at 2 pm

26.05.2017
English below: Ensk messa kl. 14. Sr. Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Hörður Áskelsson. Í messunni verður tendrað ljós til að minnast fórnarlamba voðaverkanna í Manchester. Kaffisopi eftir messu. Verið velkomin. __________________________________________________ English service with holy...

Fjölskyldumessa og sumarhátíð barnanna 28. maí kl. 11

26.05.2017
Prestur er sr. Birgir Ásgeirsson og með honum þjónar Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi. Messuþjónar aðstoða. Barna -og unglingakór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Ásu Valgerðar Sigurðardóttur. Organisti er Hörður Áskelsson. Eftir messu verða grillaðar pylsur, blásið upp hoppukastala, boðið upp á andlitsmálningu og kandífloss ofl. í...

Kammerkórinn Schola cantorum með opna tónleika á uppstigningardag kl. 17

24.05.2017
Kammerkórinn Schola cantorum býður frítt á tónleika! 25. maí, Hallgrímskirkja klukkan 17:00. Allir velkomnir. Hugarró, íhugun og mátturinn í músíkinni. Þessi orð eiga vel við tónlistina sem prýðir Meditatio, plötu Schola cantorum, sem kom út hjá BIS s.l. sumar. Gagnrýnendur um allan heim hafa lofað Meditatio bæði hvað varðar söng og efnisval...

Messa á Uppstigningardag og vorferð Hallgrímskirkju

23.05.2017
Næstkomandi fimmtudag, Uppstigningardag kl. 11 er messa í Hallgrímskirkju. Sr. Birgir Ásgeirsson þjónar fyrir altari og Karen Hjartardóttir guðfræðinemi prédikar. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organsti er Hörður Áskelsson. Eftir messu verður farið í ævintýralega og skemmtilega vorferð. Farið verður með rútu...

Foreldramorgnar - áfram í allt sumar

23.05.2017
Foreldramorgnar eru í kórkjallara alla miðvikudagsmorgna kl. 10.00 – 12.00. Foreldrar með kríli og krútt eru hjartanlega velkomin. Umsjón: Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir.

Árdegismessur í allt sumar!

23.05.2017
Árdegismessurnar verða í allt sumar á miðvikudögum kl. 8 í Hallgrímskirkju. Frábært tækifæri til þess að hefja daginn í góðu samfélagi í sumarskapi. Sr. Birgir Ásgeirsson leiðir ásamt messuþjónum. Morgunverður eftir messu. Verið hjartanlega velkomin.

Fyrirbænamessa í kórkjallara

22.05.2017
Þriðjudaginn 23. maí kl. 10.30 – 11.00 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Sr. Birgir Ásgeirsson leiðir stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja á kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina.