Fréttir: Ágúst 2017

Þú ert frábær

24.08.2017
Ég stóð við Lynghagann og fagnaði öllu hlaupafólkinu í Reykjavíkurmaraþoninu. Rúmlega fjórtán þúsund manns hlupu mislangar vegalengdir. Stemmingin var stórkostleg. Bros voru á flestum andlitum, gleðin hríslaðist um hlauparahópinn. Hvatningarköll hljómuðu frá þeim sem stóðu á gangstéttum og hlátrar ómuðu. Tónlistarfólk spilaði og kröftug, taktþung...

Hádegistónleikar Schola cantorum

22.08.2017
SCHOLA CANTORUM HÁDEGISTÓNLEIKAR ALLA MIÐVIKUDAGA KL. 12 21. júní – 31. ágúst Kammerkórinn Schola cantorum hefur frá upphafi hlotið mikla athygli fyrir fágaðan og tæran söng sinn. Kórinn var valinn „Tónlistarflytjandi ársins 2016” á Íslensku tónlistarverðlaununum í mars sl. og hefur unnið til verðlauna í erlendum keppnum og komið fram á...

Foreldramorgnar í kórkjallara

21.08.2017
Foreldramorgnar verða í kórkjallaranum í allt sumar á miðvikudagsmorgnum kl. 10.00 – 12.00. Foreldrar með kríli og krútt eru hjartanlega velkomin. Hlökkum til að sjá ykkur.

Árdegismessa

21.08.2017
Árdegismessa er alla miðvikudaga kl. 8 í Hallgrímskirkju. Frábært tækifæri til þess að hefja daginn í góðu samfélagi og það er vel tekið á móti þér. Dr. Sigurður Árni Þórðarson leiðir ásamt messuþjónum þennan miðvikudaginn. Morgunverður eftir messu. Verið hjartanlega velkomin.

Fyrirbænamessa

21.08.2017
Þriðjudaginn 22. ágúst kl. 10.30 – 11.00 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Dr. Sigurður Árni Þórðarson leiðir stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja á kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.

Orgeltónleikar - Lára Bryndís Eggertsdóttir

18.08.2017
LÁRA BRYNDÍS EGGERTSDÓTTIR ORGANISTI VIÐ SØNDERBRO KIRKJU Í HORSENS, DANMÖRKU LEIKUR TÓNLIST EFTIR GADE, PÁL ÍSÓLFSSON, GRIEG, MENDELSSOHN OG WIDOR Þá er komið að síðustu orgeltónleikum sumarsins. Lára Bryndís Eggertsdóttir byrjaði ung að læra á píanó, og þegar hún var 14 ára gömul tók hún fyrstu skrefin sem afleysingaorganisti í...

Messa 20. ágúst kl. 11

18.08.2017
Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkja leiða safnaðarsöng. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Barn borið til skírnar. Meðan barnastarfið er í sumarfríi hafa börnin aðgang að leikföngum aftast í kirkjunni. Kaffisopi eftir messu. Verið hjartanlega...

Sálmafoss á Menningarnótt

16.08.2017
Menningarnótt í Reykjavík 2017 Sálmafoss í Hallgrímskirkju 19. ágúst klukkan 15 - 21   Hallgrímskirkja iðar af lífi alla daga og á Sálmafossi á Menningarnótt heimsækja þúsundir gesta kirkjuna til að upplifa Klaisorgelið og hrífandi og fjölbreytta tónlist! Á heila tímanum sameinast allir í söng og gleði með kór og orgelinu. Samfelld dagskrá...

Orgeltónleikar fimmtudaginn 17. ágúst kl. 12

16.08.2017
Sólveig Anna Aradóttir Tónlist eftir: N. Bruhns, J. Pachelbel, Jón Nordal Sólveig Anna Aradóttir stundaði píanónám hjá Nínu Margrétar Grímsdóttur. Hún ólst upp í barnakór hjá Þórunni Björnsdóttur og seinna hjá Þorgerði Ingólfsdóttur en syngur nú með Sönghópnum við Tjörnina. Sólveig útskrifaðist með kirkjutónlistarpróf frá Tónlistarskóla...