Fréttir: 2018

Síðustu foreldramorgnar fyrir jól

18.12.2018
Miðvikudaginn 19. desember verða síðustu foreldramorgnarnir fyrir í Suðursalnum kl. 10 – 12. Foreldrar eða forráðamenn eru hjartanlega velkomin með krúttin sín. Sungið og spjallað í góðu samfélagi. Verið velkomin.

Átta milljónir til hjálparstarfs

17.12.2018
Við messu í Hallgrímskirkju sunnudaginn 16. desember var úthlutað úr Líknarsjóði Hallgrímssafnaðar og gerð grein fyrir messusamskotum á árinu. Eins og jafnan er safnað til góðra málefna í sunnudagsmessum í Hallgrímskirkju og einnig í árdegismessum á miðvikudögum. Kirkjugestir lögðu samtals fram um 1.5 milljónir króna í samskotum við messur á...

Síðasta árdegismessan fyrir jól

17.12.2018
Miðvikudaginn næsta, 19. desember verður messað kl. 8 í Hallgrímskirkju. Dr. Sigurður Árni Þórðarson þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Eftir messu verður jólamorgunverður og kaffi. Allir hjartanlega velkomnir, góð leið til þess að byrja daginn snemma.

Fyrirbænamessa

17.12.2018
Á þriðjudögum kl. 10.30 – 12 er fyrirbænamessa í Suðursalnum. Á morgun mun dr. Sigurður Árni Þórðarson leiða stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja í kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.

Hádegisbæn fellur niður

17.12.2018
Því miður fellur síðasta hádegisbænin fyrir jól vegna veikinda.  

Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju 2018

16.12.2018
Dagana 1. - 31. desember er jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju. Mikið um dýrðir og hér gætir að líta plaggat um hátíðina. Nánari upplýsingar inn á listvinafelag.is.  

Jólatónlistarhátíð í Hallgrímskirkju 1.-31. des. 2018.

14.12.2018
Klais orgel Hallgrímskirkju var vígt 13. desember 1992 og hefur sú skemmtilega hefð skapast að halda jólatónleika með orgelinu kringum vígsluafmælisdag orgelsins.    Í ár er boðið upp á jólaorgeltónleika sunnudaginn 16. desember kl. 17 með Láru Bryndísi Eggertsdóttur, organista Hjallakirkju í Kópavogi, en hún er nýflutt aftur heim...

Messa og barnastarf sunnudaginn 16. desember kl. 11

14.12.2018
Messa og barnastarf kl. 11 - Þriðji sunnudagur í aðventu 16. desember 2018 Séra Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Karlakór Reykjavíkur syngur og leiðir messusönginn undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón með barnastarfinu hafa Ragnheiður Bjarnadóttir...

Fyrsta skóflustungan 1945

14.12.2018
Í dag, 14. desember, eru 73 ár frá því fyrsta skóflustungan var tekin að Hallgrímskirkju. Sá merki viðburður vakti enga athygli og enginn fjölmiðill sendi fulltrúa sinn og því var hvergi greint frá tiltækinu og engin mynd var tekin. En kvenfélag Hallgrímskirkju lét sig það litlu varða og bakaði með gleði upp kapellu og turn stórkirkjunnar....