Í hádeginu á mánudögum leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir bænastund hjá Maríumyndinni inn í kirkju. Stundin hefst nú á nýjum tíma kl. 12.10.
Verið hjartanlega velkomin.
Messa og barnastarf
18. mars 2018 kl. 11.
Boðunardagur - Fimmti sunnudagur í föstu
Sr. Birgir Ásgerisson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Einsöngvari er Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón með...
Á fimmtudögum eru kyrrðarstundir í hádeginu kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina og organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir stundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal kirkjunnar.
Verið hjartanlega velkomin.
Næstu miðvikudaga verða hádegiserindi kl. 12 í Suðursal Hallgrímskirkju. Eftir erindin verður opið fyrir umræðu og spurningum.
Allir eru velkomnir.
14.03. ,, SEM LJÚFUR SUMARVINDUR
HJALTI HUGASON PRÓFESSOR Í KIRKJUSÖGU TALAR UM LJÓÐLIST VILBORGAR DAGBJARTSDÓTTUR RITHÖFUNDAR.
Á hverjum miðvikudegi eru foreldramorgnar í kórkjallaranum kl. 10 12. Foreldrar eða forráðamenn eru hjartanlega velkomin með krúttin sín. Sungið og spjallað í góðu samfélagi. Inga Harðardóttir og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir taka vel á móti ykkur.
Á miðvikudagsmorgnum kl. 8 eru árdegismessur í Hallgrímskirkju. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Eftir messu er morgunverður og kaffi.
Allir hjartanlega velkomnir, góð leið til þess að byrja daginn snemma.
Í hádeginu á mánudögum leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir bænastund hjá Maríumyndinni inn í kirkju. Stundin hefst nú á nýjum tíma kl. 12.10.
Verið hjartanlega velkomin.
Sérlega fallegir og áhrifamiklir tónleikar Mótettukórs Hallgrímskirkju verða haldnir í Hallgrímskirkju sunnudaginn 11. mars nk. kl. 17.
Efnisskrá föstutónleika Mótettukórsins undir yfirskriftinni Ákall er samansett af áhrifaríkum trúarlegum kórverkum sem fjalla um missi, sorg, bæn og huggun í skugga krossins á árstíma píslarsögu Krists...