Fréttir: Ágúst 2018

Messa og barnastarf 2. september 2018, kl. 11.

31.08.2018
Messa og barnastarf 2. september 2018, kl. 11. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur og hópi messuþjóna. Fulltrúar Maríusystra, norrænna samtaka, lesa texta. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón barnastarfs Karítas, Ragnheiður og...

Íhugunarstaður

29.08.2018
Hallgrimskirkja er eitt af tíu mikilvægustu íhugunarmusterum heims - skv the Guardian. Hið heilaga er ekki horfið úr heimi - allir leita hins undursamlega - og helgidómar eru góðir sambandsstaðir fyrir fólk. Verið velkomin í Hallgrímskirkju.

Elín fer til Edinborgar

28.08.2018
Í dag var hressandi kveðjukaffi í Hallgrímskirkju þegar við kvöddum hana Elínu Broddadóttur, kirkjuvörð, sem heldur nú á vit náms og ævintýra í Edinborg. Elín kom fyrst í Hallgrímskirkju þegar hún var lítil stelpa í barnastarfi en varð fljótlega virk í öðru starfi kirkjunnar einnig. Hún var starfsmaður barna- og unglingastarfs þar til hún náði...

Eftirvænting við upphaf vetrarstarfs

27.08.2018
Það var eftirvæntning og pizzuilmur í lofti við messu sunnudagins í Hallgrímskirkju. Til fjölskyldumessu voru mætt fermingarbörn næsta árs, messuþjónar, starfsfólk í barnastarfi og margir aðrir, yngri og eldri. Æskulýðsleiðtogi kirkjunnar, Inga Harðardóttir flutti hugvekju og minnti okkur á upphaf skólastarfs, gleðina við skólastarfið og líka...

Hádegistónleikar Schola Cantorum miðvikudaginn 29. ágúst kl. 12

27.08.2018
Miðvikudaginn 29. ágúst kl. 12 syngur hinn margrómaði kammerkór Hallgrímskirkju, Schola cantorum íslenskar og erlendar kórperlur. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. Tónleikagestum er boðið í kaffi og spjall við meðlimi kórsins að tónleikunum loknum. Miðaverð er 2.500 kr. Miðasala hefst í anddyri kirkjunnar klukkustund fyrir tónleikana, en einnig er...

Ensk messa 26. ágúst kl 14:00

24.08.2018
Ensk messa 26. ágúst kl 14:00 Þrettándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Ensk messa kl. 14 í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. Sercice in English at 2PM Holy Communion Agust 26th 2018 At 14:00 pm

Fjölskyldumessa 26. ágúst 2018, kl. 11.

24.08.2018
Þrettándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð.  Dagur kærleiksþjónustunnar í kirkjunni Fjölskyldumessa 26. ágúst 2018, kl. 11.   Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi þjóna ásamt  messuþjónum. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Hörður Áskelsson. Guðspjall: Lúk 10.23-37 Ensk...

Ljósberinn í bað

24.08.2018
Það þarf reglulega að þrífa ljósberann í kirkjunni. Þúsundir koma í Hallgrímskirkju á hverjum degi og mörg kveikja á kertum þegar það staldrar við og biður fyrir fólkinu sínu og sjálfu sér. Jón Konráð og Hjalti, kirkjuverðir, tóku sig til í vikunni og settu ljósberann í sturtu. Og skrúbburinn var notaður! Nú eru ytri ummerki bænagerðanna horfin en...

Fjörugur foreldramorgunn

22.08.2018
Það var fjörugur hópur foreldra og barna sem kom saman í Suðursal Hallgrímskirkju í morgun til samverustundar. Foreldramorgnar eru vikulega í Hallgrímskirkju, á miðvikudögum kl 10-12 og eru kjörinn vettvangur fyrir foreldra sem eru í fæðingarorlofi eða heimavinnandi. Börn og foreldrar kynnast hvert öðru, syngja saman og njóta léttrar...