Fréttir: Ágúst 2018

Góð gjöf frá ferðamanni

21.08.2018
Debra Wallace frá Texas í Bandaríkjunum kom færandi hendi í Hallgrímskirkju á dögunum. Hún hafði fundið peninga á hótelherbergi sínu sem hún kannaðist ekki við að eiga og starfsfólk hótelsins vissi ekki hver gæti átt þá. Þar sem Debra átti ekki peningana og hótelið ekki heldur þá fannst henni alveg kjörið að afhenda Hallgrímskirkju peningana að...

Hádegistónleikar Schola Cantorum miðvikudaginn 22. ágúst kl. 12

20.08.2018
Miðvikudaginn 22. ágúst kl. 12 syngur hinn margrómaði kammerkór Hallgrímskirkju, Schola cantorum íslenskar og erlendar kórperlur. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. Tónleikagestum er boðið í kaffi og spjall við meðlimi kórsins að tónleikunum loknum. Miðaverð er 2.500 kr. Miðasala hefst í anddyri kirkjunnar klukkustund fyrir tónleikana, en einnig er...

Messa sunnudaginn 19. ágúst kl. 11

18.08.2018
Messa kl. 11 Sunnudaginn 19. ágúst   Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari, ásmat Ásu Björk Ólafsdóttur. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Allir eru velkomnir til messu.

Hannfried Lucke spilar á seinustu orgeltónleikum Alþjóðlegs orgelsumars, sunnudaginn 19. ágúst kl. 17

15.08.2018
Sunnudaginn 19. ágúst kl. 17 leikur Hannfried Lucke, konsertorganisti og prófessor við Mozarteum-háskólann í Salzburg, verk eftir Byrd, Liszt, Novák, Reger og Rachmaninov, ásamt Fantasíu og fúgu í g-moll eftir Bach. Miðaverð er kr. 2.500. Miðasala í Hallgrímskirkju opnar klukkutíma fyrir hverja tónleika en einnig má kaupa miða...

Menningarnótt í Reykjavík 2018 -Sálmafoss í Hallgrímskirkju laugardaginn 18. ágúst kl. 15 - 21.

14.08.2018
Laugardaginn 18. ágúst frá kl. 15 - 21 verður vegleg tónlistardagskrá í boði, svokallaður Sálmafoss á Menningarnótt. Aðgangur að Sálmafossi er ókeypis, allir eru velkomnir!    Listvinafélag Hallgrímskirkju þakkar þeim stóra hópi tónlistarfólks og aðstoðarfólks, sem leggur þessari dagskrá lið sitt. Listrænn stjórnandi og...

Jónas Þórir á tónleikum á fimmtudaginn 16. ágúst kl. 12

14.08.2018
Fimmtudaginn 16. ágúst kl. 12 leikur organisti Bústaðakirkju, Jónas Þórir, frjálsa tónsmíð sem nefnist Rhapsodía og er spunnin út frá helstu verkum George Gershwins, m.a. Rhapsody in Blue. Miðaverð er kr. 2.000. Miðasala hefst í anddyri kirkjunnar klukkustund fyrir tónleikana, en einnig er hægt að kaupa miða á midi.is.   Jónas...

Hádegistónleikar Schola Cantorum miðvikudaginn 15. ágúst kl. 12

14.08.2018
Miðvikudaginn 15. ágúst kl. 12 syngur hinn margrómaði kammerkór Hallgrímskirkju, Schola cantorum íslenskar og erlendar kórperlur eftir Jón Ásgeirsson, Jón Nordal, Sigvalda Kaldalóns, Händel, Byrd, Sigurð Sævarsson, Þorkel Sigurbjörnsson og Hjálmar H. Ragnarsson. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. Tónleikagestum er boðið í kaffi og spjall við meðlimi...

Messa sunnudaginn 12. ágúst kl. 11

10.08.2018
Messa kl. 11. Ellefti sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar. Hópur messuþjóna aðstoðar. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Hörður Áskelsson. Lexía: Jes 2.11-17. Pistill: Róm 3.21-26. Guðspjall: Lúk 18.9-14.

Orgeltónleikar Hans-Ola Ericsson. Laugardaginn 11. ágúst kl.12 og sunnudaginn 12. ágúst kl.17

08.08.2018
Laugardaginn 11. ágúst kl. 12 leikur hinn heimsfrægi organisti og prófessor við McGill-háskólann í Montréal, Hans-Ola Ericsson, verk eftir O. Lindberg og J.S Bach. Miðaverð kr. 2.000. Á seinni tónleikum sínum sunnudaginn 12. ágúst kl. 17, leikur  Hans-Ola Ericsson verk eftir J.S Bach, R. Wagner (Pílagrímakórinn úr Tannhäuser) og F. Liszt....