Fréttir: Janúar 2020

Hádegisbæn

26.01.2020
Á mánudögum kl. 12:15 leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir bænastund í hádeginu. Stundin er hægra megin við altarið hjá myndinni af Maríu. Allir velkomnir.

Á döfinni framundan

22.01.2020
Vers vikunnar: Ef einhvern mann í ykkar hópi brestur visku, þá biðji hann Guð sem gefur öllum örlátlega og átölulaust og honum mun gefast. Jabobsbréfið 1.5 Kæru vinir og viðtakendur. Efni fréttabréfsins: - 3 nýjir æskulýðshópar - Kyrrðarstund - Kvöldkirkja - Messa og...

Kvöldkirkjan fimmtudaginn 23. janúar

21.01.2020
Allir, sem koma inn í Hallgrímskirkju fimmtudagskvöldið 23. janúar ganga inn í kyrrð og rökkvaða kirkju með kertaljósum. Þetta kvöld verður kvöldkirkja, sem er samvinnuverkefni presta og starfsfólks Hallgrímskirkju og Dómkirkju. Kvöldkirkja verður frá kl. 19 til 21:30 og er samstarfsverkefni Dómkirkjunnnar og Hallgrímskirkju. Prestar og...

Kyrrðarstund

21.01.2020
Fimmtudaginn 23. janúar kl. 12 er kyrrðarstund. Sr. Sigurður Árni Þórðarson hugleiðir og Björn Steinar Sólbergsson organsti leikur á orgelið í kyrrðarstundinni. Eftir kyrrðarstund verður seld súpa og brauð á vægu verði í Suðursal. Allir velkomnir.

Árdegismessa

21.01.2020
Árdegismessa Miðvikudaginn 22. janúar kl. 8 Sr. Sigurður Árni Þórðarson messar ásamt messuþjónum. Morgunmatur eftir messu. Kjörin leið til þess að byrja daginn snemma! Allir hjartanlega velkomnir.

Krílasálmar

20.01.2020
Nýtt námskeið í krílasálmum hefst þriðjudaginn 14. janúar. Námskeið verður að þessu sinni kl. 11:30 - 12:15 og verður í 6 vikur. Ljúf tónlistarstund fyrir 3 - 18 mánaða kríli og foreldra þeirra. Ókeypis aðgangur en nauðsynlegt er að skrá sig hjá Kristnýju Rós Gústafsdóttur, verkefnastjóra- og djákna: kristny@hallgrimskirkja.is. Einnig með...

Hádegisbæn

20.01.2020
Á mánudögum kl. 12:15 leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir bænastund í hádeginu. Stundin er hægra megin við altarið hjá myndinni af Maríu. Allir velkomnir.

Vatni breytt í vín!

16.01.2020
Messa og barnastarf verða í Hallgrímskirkju 19. janúar kl. 11. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Prédikunarefnið er víngerð Jesú og merking sögunnar um Kana. Messuþjónar aðstoða! Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti: Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón barnastarfs: Kristný Rós Gústafsdóttir,...

Kyrrðarstundir hefjast aftur á nýju ári

14.01.2020
Þá er komið að kyrrðarstundum sem hefast aftur fimmtudaginn 16. janúar 2020 kl. 12. Að þessu sinni mun sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiða stundina en organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir kyrrðarstundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.