Sigrún Ásgeirsdóttir leiðir bænastund alla mánudaga í vetur. Stundin er hjá myndinni af Maríu mey norðanmeginn í kirkjunni. Verið velkomin til bænahalds.
Í kyrrðarstundinni 10. desember leikur Björn Steinar Sólbergsson og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir íhugun og biður bæn. Samveran hefst kl. 12.00 og er í hálftíma. Eftir stundina verður hægt að kaupa aðventu- og jafnvel jólaveitingar. Allir hjartanlega velkomnir.
Ungi maðurinn spurði: Hvað á ég að gera ? Hvernig var svar Jesú? Í messunni í Hallgrímskirkju 4. október sem hefst kl. 11 mun Sigurður Árni Þórðarson skýra Jesúsvarið og ræða lífsstefnuna í prédikunni. Hann þjónar fyrir altari ásamt sr. Leonard Ashford og messuþjónum. Félagar úr Mótettukórnum syngja. Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgelið....
Fyrsti kvenfélagsfundur vetrarins er í kvöld kl. 20.00 - 22.00 í suðursal kirkjunnar. Á dagskránni er umfjöllun um Steinkudys og veitingar í boði. Allar konur eru hjartanlega velkomnar.
Hressar samverur hjá eldri borgurum á föstudögum í kórkjallaranum. Samverurnar verða ávallt í vetur á þriðjudögum og föstudögum kl. 11.00 13.00. Hist er í kórkjallara kirkjunnar og hreyfing, súpa og spjall er meðal annars á dagskránni. Helga Þorvaldsdóttir sér um fjörið og allir er velkomnir.
Fimmtudaginn 1. okt kl. 16.30 17.30 er æfing hjá kórnum en hann æfir að jafnaði tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum á þessum tíma.
Kórinn er ætlaður stúlkum og drengjum á aldrinum 10-13 ára, af höfuðborgarsvæðinu og nágrannasveitarfélögum.
Verkefni kórsins í vetur er meðal annars söngur í fjölskyldumessu, æfingadagur/heimsækja...
Í kyrrðarstundinni 1. okt verður fallegt orgelspil.
Sigurður Árni Þórðarson íhugar. Samveran hefst kl. 12.00 og er í hálftíma. Eftir stundina verður hægt að kaupa súpa og brauð á vægu verði.
Allir hjartanlega velkomnir.
Við bjóðum alla hjartanlega velkomna í árdegismessu í kór kirkjunnar kl. 8 miðvikudaginn 30. september.
Dr. Sigurður Árni Þórðarson þjónar en fulltrúar úr söfnuðinum leiða bænagjörð, forsöng og aðstoða við útdeilingu.