Fréttir: 2019

Síðasta fyrirbænamessan fyrir jól

16.12.2019
Þriðjudaginn 17. desember kl. 10.30 – 12 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Á morgun mun sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiða stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja í kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.

Hádegisbæn

15.12.2019
Á mánudögum kl. 12:15 leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir bænastund í hádeginu. Stundin er hægra megin við altarið hjá myndinni af Maríu. Allir velkomnir.

Jólatónleikar með Schola cantorum á jólatónleikadegi evrópskra útvarpsstöðva

14.12.2019
Sunnudaginn 15. desember kl. 14 verða jólatónleikar með Schola cantorum í Hallgrímskirkju. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. Þessi tónleikar verða í beinni útsendingu frá Rás 1 og evrópskum útvarpsstöðvum í tilefni af jólatónleikadegi evrópskra útvarpsstöðva. Kórinn mun flytja tónlist tengda jólum eftir Báru Grímsdóttur, Sigurð Sævarsson, Peter...

Nóg um að vera í Hallgrímskirkju um helgina

13.12.2019
Helgina 14. - 15. desember You can find the English version of these news here. Kirkjan er lokuð kl. 10 - 13 laugardaginn 14. desember vegna tónleikaæfinga. Turninn er opinn.  Aðventutónleikar með Karlakór Reykjavíkur laugardaginn 14. desember kl. 17 og sunnudaginn 15. desember kl. 17 & 20 Aðalgestur kórsins þetta árið er Sigrún...

Stjörnur og snjókorn Hallgrímskirkju

13.12.2019
Á aðventunni fríkka bekkir Hallgrímskirkju. Bekkjaendarnir hafa síðustu ár verið skreyttir með hvítum, hekluðum snjókornum. Erla Elín Hansdóttir, sem er kunn að kennslu í Kvennaskólanum og störfum í þágu Hallgrímskirkju, er líka hannyrðakona. Fyrir mörgum árum vantaði skreytingu á aðventunni og þá gerði hún stjörnur úr pappír, sem voru notaðar til...

Upplestur á Jólunum hans Hallgríms aðgengilegur til hlustunar

13.12.2019
Þeir sem hafa áhuga á geta nú hlustað og notið upplestur á Jólunum hans Hallgríms hér á heimasíðunni okkar. Flutningurinn er þó aðgengilegur bara til áramóta en Forlagið og höfundur bókarinnar, Steinunn Jóhannesdóttir hafa gefið góðfúslegt leyfi til að hafa bókina aðgengilega í tilefni af sýningunni á Jólunum hans Hallgríms sem er í gangi til...

Kvöldkirkjan fimmtudaginn 12. desember

11.12.2019
Allir, sem koma inn í Hallgrímskirkju fimmtudagskvöldið 12. desember ganga inn í kyrrð og rökkvaða kirkju með kertaljósum. Þetta kvöld verður kvöldkirkja, sem er samvinnuverkefni presta og starfsfólks Hallgrímskirkju og Dómkirkju. Kvöldkirkja verður frá kl. 19 til 21,30 og verður fyrst um sinn einu sinni í mánuði, fyrst í Hallgrímskirkju og í...

Aðventu kyrrðarstund og jólaborð

11.12.2019
Fimmtudaginn 12. desember kl. 12 Þá er komið að síðustu kyrrðarstundinni fyrir jól og að þessu sinni verður hún með aðventu sniði. Stundin er í hálftíma og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir íhugar og Björn Steinar Sólbergsson er organisti. Eftir stundina verður hið árlega og veglega jólaborð í Suðursalnum á vægu verði. Allir velkomnir.

Árdegismessa 11.12.2019 fellur niður vegna veðurs

10.12.2019
Veðrið sem er nú að ganga yfir landið verður ekki farið í fyrramálið.  Þess vegna hefur sú ákvörðun verið tekin að sleppa árdegismessunni endilega látið sem flesta vita. Kær kveðja, Starfsfólk Hallgrímskirkju