Í hádeginu á mánudögum leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir bænastund hjá Maríumyndinni inn í kirkju. Stundin hefst nú á nýjum tíma kl. 12.10.
Verið hjartanlega velkomin.
Hallgrímskirkja
Messa og barnastarf 14. janúar kl. 11
Annar sunnudagur eftir þrettánda
Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja.
Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjá með barnastarfi hefur Inga Harðardóttir...
Fimmtudaginn 11. janúar kl. 12 hefjast kyrrðarstundir að nýju í hádeginu. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina og organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir stundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal kirkjunnar.
Verið hjartanlega velkomin.
Á miðvikudagsmorgnum kl. 8 eru árdegismessur í Hallgrímskirkju. Sr. Birgir Ásgeirsson þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Eftir messu er morgunverður og kaffi.
Allir hjartanlega velkomnir, góð leið til þess að byrja daginn snemma.
Á hverjum miðvikudegi eru foreldramorgnar í kórkjallaranum kl. 10 12. Foreldrar eða forráðamenn eru hjartanlega velkomin með krúttin sín. Sungið og spjallað í góðu samfélagi.
Inga Harðardóttir og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir taka vel á móti ykkur.
Í þessari viku er kirkjan er lokuð vegna útfara eftirfarandi daga:
Þriðjudaginn lokað: 11:00-14:30
Fimmtudaginn lokað: frá kl. 13:30
Föstudaginn lokað: 12:30-15:30
Á miðvikudagsmorgnum kl. 8 eru árdegismessur í Hallgrímskirkju. sr. Birgir Ásgeirsson þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Eftir messu er morgunverður og kaffi. Allir hjartanlega velkomnir, góð leið til þess að byrja daginn snemma.
Á þriðjudögum kl. 10.30 12 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Á morgun mun sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiða stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja í kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina.
Verið velkomin.
Í hádeginu á mánudögum leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir bænastund hjá Maríumyndinni inn í kirkju. Stundin hefst nú á nýjum tíma kl. 12.10.
Verið hjartanlega velkomin.