Fréttir

Árdegismessa

26.09.2016
Alla miðvikudaga kl. 8 er samfélag í kirkjunni hittist og sem kallast miðvikudagssöfnuður. Allir eru hjartanlega velkomnir. Dr. Sigurður Árni Þórðarson þjónar ásamt góðum hópi úr söfnuðinum. Sungnir eru sálmar, beðið fyrir lífi og starfi, altarisganga og stutt hugleiðing. Morgunmatur eftir messu í góðu samfélagi. Verið hjartanlega velkomin.

Liðug á líkama og sál

26.09.2016
Starf eldri borgara er á morgun, þriðjudaginn 27. september. Hist er í kórkjallaranum kl. 11 – 13 þar sem ýmislegt er á dagskránni t.d. leikfimi, spjall og ávallt er endað á súpu. Mjöll Þórarinsdóttir og Helga Þorvaldsdóttir sjá um stundina. Verið hjartanlega velkomin.

Fyrirbænamessa í kórkjallara

26.09.2016
Á morgun, þriðjudaginn 27. september kl. 10.30 – 11.00 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Dr. Sigurður Árni Þórðarson leiðir stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja á kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.

Hádegisbæn á mánudögum

25.09.2016
Mánudaginn 26. september er stutt bænastund í hádeginu kl. 12.15 – 12.30 sem Sigrún Ásgeirsdóttir leiðir. Stundin er inn í kirkju hjá myndinni af Maríu mey. Verið hjartanlega velkomin.

Ensk messa 25. september kl. 14 / English service with holy communion 25. September at 2 pm

23.09.2016
English below: Ensk messa með altarisgöngu í Hallgrímskirkju kl. 14, 25. September. Sr. Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Kaffisopi eftir messu. Allir velkomnir. Service – with Holy Communion – in Hallgrimskirkja 25. September at 2 pm. Rev. Bjarni Þór Bjarnason will preach and...

Messa og barnastarf 25. september kl. 11

23.09.2016
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Birgi Ásgeirssyni. Messuþjónar aðstoða. Eldri félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Kammerkórinn Katarina Nova frá Stokkhólmi í Svíþjóð syngur undir stjórn Lars Andersson. Umsjón með barnastarfi hefur Inga Harðardóttir...

Kyrrðarstund á fimmtudögum

20.09.2016
Kyrrðarstundirnar halda áfram í vetur og eru á fimmtudögum kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu með bæn. Prestur er sr. Sigurður Árni Þórðarson og organsti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir stundina er svo seld súpa á vægu verði í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin!

Foreldramorgnar í kórkjallara

20.09.2016
Foreldramorgnar eru í kórkjallara alla miðvikudagsmorgna kl. 10.00 – 12.00. Foreldrar með kríli og krútt eru hjartanlega velkomin. Umsjón: Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir.

Árdegismessa

19.09.2016
Miðvikudaginn 21. septemer kl. 8 er árdegismessa í Hallgrímskirkju. Messan er frábær leið til þess að hefja daginn í góðu samfélagi og það er vel tekið á móti þér. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir ásamt messuþjónum. Morgunverður eftir messu. Verið hjartanlega velkomin.