Fréttir

Fyrirbænamessa og Liðug á líkama og sál á þriðjudögum

03.10.2016
Á morgun, þriðjudaginn 4. október kl. 10.30 – 11.00 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum með altarisgöngu. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja á kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Kl. 11 byrjar svo starf eldri borgara, Liðug á líkama og sál. Á dagskránni þann...

30 ÁRA VÍGSLUAFMÆLI HALLGRÍMSKIRKJU HÁTÍÐARTÓNLEIKAR 29. október kl. 19 og 30. október kl. 17.

03.10.2016
Hátíðlegur lúðraþytur og pákuslög ásamt glæsilegum söng og hljóðfæraslætti fylla hvelfingar Hallgrímskirkju þegar Mótettukór Hallgrímskirkju ásamt Alþjóðlegu barokksveitinni í Hallgrímskirkju (áður Den Haag) flytja glæsilegu hátíðarverkin Fanfare og Te Deum eftir Charpentier og Messu nr. 1 í F-dúr eftir J.S. Bach í tilefni af 30 ára...

Orðasóðar og frelsið

02.10.2016
„Guðlast er að virða ekki hinn elskandi, leysandi og styðjandi Guð. Að Guð elskunnar sé ekki elskaður.“ Prédikun Sigurðar Árna í útvarpsmessunni í Hallgrímskirkju 2. október er að baki þessum smellum tru.is og sigurdurarni.is

Hádegisbæn á mánudögum

01.10.2016
Mánudaginn 26. september er stutt bænastund í hádeginu kl. 12.15 – 12.30 sem Sigrún Ásgeirsdóttir leiðir. Stundin er inn í kirkju hjá myndinni af Maríu mey. Verið hjartanlega velkomin.

Breyttur opnunartími

30.09.2016
Vetraopnunartíminn hefst laugardaginn 1. október og lokum við kirkjunni alla daga kl 17:00. Turninn lokar kl. 16:45. Vetraopnunartíminn er í gildi október út apríl.

Messa og barnastarf 2. október kl. 11

30.09.2016
Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Hörður Áskelsson. Umsjón með barnastarfi hefur Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi. Kaffisopi eftir messu. Verið hjartanlega velkomin til messu.  

Kyrrðarstund

28.09.2016
Kyrrðarstund er á sínum stað og verður fimmtudaginn 29. september kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Prestur er sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og organsti er Hörður Áskelsson. Eftir stundina er svo seld súpa á vægu verði í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin!

Foreldramorgnar í kórkjallara

27.09.2016
Foreldramorgnar eru í kórkjallara alla miðvikudagsmorgna kl. 10.00 – 12.00. Foreldrar með kríli og krútt eru hjartanlega velkomin. Umsjón: Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir.

Árdegismessa

26.09.2016
Alla miðvikudaga kl. 8 er samfélag í kirkjunni hittist og sem kallast miðvikudagssöfnuður. Allir eru hjartanlega velkomnir. Dr. Sigurður Árni Þórðarson þjónar ásamt góðum hópi úr söfnuðinum. Sungnir eru sálmar, beðið fyrir lífi og starfi, altarisganga og stutt hugleiðing. Morgunmatur eftir messu í góðu samfélagi. Verið hjartanlega velkomin.