Fréttir

Kyrrðarstund

13.02.2019
Kyrrðarstund í hádeginu á fimmtudaginn 14. febrúar kl. 12. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina en organisti er Hörður Áskelsson. Eftir kyrrðarstundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.

Foreldramorgnar í kórkjallara

12.02.2019
Foreldramorgnar í kórkjallara kl. 10 – 12. Foreldrar eða forráðamenn eru hjartanlega velkomin með krílin og krúttin. Umsjón hafa Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir.

Árdegismessa

12.02.2019
Árdegismessa miðvikudaginn 13. febrúar kl. 8. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir messar og ásamt messuþjónum. Morgunmatur eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir.

Fyrirbænamessa í kórkjallara

11.02.2019
Þriðjudaginn 5. febrúar kl. 10:30 verður fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir. Kaffisopi eftir stundina. Allir velkomnir.

Nr. 2

11.02.2019
Mósebók  20: 1 -3, 71 Drottinn mælti öll þessi orð:2 „Ég er Drottinn, Guð þinn, sem leiddi þig út af Egyptalandi, út úr þrælahúsinu.3 Þú skalt ekki hafa aðra guði en mig…..7 Þú skalt ekki leggja nafn Drottins, Guðs þíns, við hégóma því að Drottinn mun ekki láta þeim óhegnt sem leggur nafn hans við hégóma. ANáð sé með ykkur og friður frá Guði...

GESTIR FRÁ LITHÁEN- hin margverðlaunaða söngkona JURGA ásamt DIANA ENCIENÉ orgelleikara 11. febrúar 2019 kl. 20

11.02.2019
Litháenska söngkonan  JURGA sem unnið hefur öll helstu verðlaun sem ein skærasta poppsöngstjarnan í heimalandi sínu flytur efnisskrá með verkum eftir Bach, Mozart, Händel, Jurga o fl. ásamt DIANA ENCIENÉ orgelleikara mánudaginn 11. febrúar 2019 kl. 20.  Tónleikarnir eru haldnir á vegum Listvinafélags...

Hádegisbæn á mánudögum kl. 12:15

09.02.2019
Á mánudögum kl. 12:15 leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir bænastund í hádeginu. Stundin er hægra megin við altarið hjá myndinni af Maríu. Allir velkomnir.

Messa og barnastarf 10. febrúar 2019, kl. 11.

09.02.2019
HALLGRÍMSKIRKJA   Síðasti sunnudagur eftir þrettánda – Boðorðadagur 3 Messa og barnastarf 10. febrúar 2019, kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Schola cantorum syngur. Organisti er Hörður Áskelsson. Umsjón með barnastarfi hafa Inga Harðardóttir, Karítas Hrundar Pálsdóttir...

Tónleikar LHÍ á Vetrarhátíð laugardaginn 9. feb. kl. 14 í Hallgrímskirkju

08.02.2019
Boðið verður upp á áhugaverðan samslátt gamals og nýs á tónleikum í samvinnu  Listvinafélags Hallgrímskirkju og Listaháskóla Íslands í Hallgrímskirkju á Vetrarhátíð, laugardaginn 9. febrúar kl. 14. Á tónleikunum hljómar glæný tónlist eftir tónsmíðanemendur Listaháskólans í flutningi hljóðfæranemenda skólans í bland við aríur eftir Johann...