Fréttir

Kyrrðarstund

22.10.2019
Kyrrð er góð fyrir sál og líkama. Dr. Sigurður Árni Þórðarson hugleiðir og Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgelið í kyrrðarstundinni. Eftir kyrrðarstund verður seld súpa og brauð á vægu verði í Suðursal. Allir velkomnir.

Árdegismesssa 22.10.2019 kl. 08:00

22.10.2019
Miðvikudaginn 22. október kl. 8 mun sr. Sigurður Árni messar ásamt messuþjónum. Tilvalið tækifæri til að byrja daginn snemma í góðu samfélagi. Morgunmatur eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir.

Núvitund trúarinnar

21.10.2019
Biblían er mögnuð og mikilvægt að virða sérleik hennar. Við ættum ekki að lesa Biblíuna eins og lögbók eða náttúrufræði, heldur sem stórbók um lífið, allar víddir þess og bylgjur. Við ættum að reyna að forðast að láta eigin fordóma eða forsendur stýra hvernig við lesum eða nálgust frásögur og viðfangsefni Biblíunnar, heldur leyfa þessu mikla...

Hádegisbæn

20.10.2019
Á mánudögum kl. 12:15 leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir bænastund í hádeginu. Stundin er hægra megin við altarið hjá myndinni af Maríu. Allir velkomnir.

Ímyndir og raunmyndir

18.10.2019
Hver ertu og hvernig er myndin af þér? Hvað sést þegar á þig er horft? Hvað viltu að sjáist? Viltu leyfa hrukkunum, vörtunum, andlishárunum að sjást? Er þér annt um að sjást eins og þú raunverulega ert? Eða viltu breyta í raun eða mynd. Með forritum getum við breytt útliti fólks á ljósmyndum, lagað nefstærð, hnikað til eyrnasneplum, minnkað eða...

Messa og barnastarf sunnudaginn 20. október kl. 11

17.10.2019
Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt dr. Sigurvin Lárusi Jónssyni. Messuþjónar aðstoða. Arngerður María Árnadóttir leikur á orgelið og félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Barnastarfið hefst á sama tíma. Umsjón: Ragnheiður Bjarnadóttir og Rósa Árnadóttir. Kaffisopi eftir messu.  Verið velkomin til...

BAROKKTÓNLEIKAR Í HALLGRÍMSKIRKJU

17.10.2019
BAROKKTÓNLEIKAR Í HALLGRÍMSKIRKJU Laugardaginn 19. október kl. 17 Barokkhópurinn Baroque-aros frá Árósum í Danmörku Gestasöngvari: Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, mezzósópran. Einleikari: Eric Beselin, óbó/Oboe Flutt verður ÍTÖLSK BAROKKTÓNLIST eftir Monteverdi, Mainerio, Marcello, Porpora og Biago Marini. Aðgangseyrir: 3900...

Kirkjan lokuð föstudaginn 18. október

17.10.2019
Kirkjan verður lokuð allann daginn, föstudaginn 18. október vegna athafna. Opnum aftur laugardaginn 19. október kl. 9 - 17 og turninn kl. 9 - 16:30.  

Kyrrðarstund

17.10.2019
Kyrrðarstund Fimmtudaginn 17. október kl. 12 Kyrrð er góð fyrir sál og líkama. Dr. Sigurður Árni Þórðarson hugleiðir og Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgelið í kyrrðarstundinni. Eftir kyrrðarstund verður seld súpa og brauð á vægu verði í Suðursal. Allir velkomnir.