Mánudaginn 12. desember er stutt bænastund í hádeginu kl. 12.15 12.30 sem Sigrún Ásgeirsdóttir leiðir. Stundin er inn í kirkju hjá myndinni af Maríu mey. Verið hjartanlega velkomin.
JÓL NOËL NOËL
Jólatónlistarhátið Hallgrímskirkju á vegum Listvinafélags kirkjunnar heldur áfram sunnudaginn 11. desember kl. 17, þegar Björn Steinar Sólbergsson leikur á hið volduga Klaisorgel Hallgrímskirkju.
Á efnisskránni eru verk tengd aðventu- og jólum m.a. hið undurfagra Pastorale eftir J.S.Bach, frönsk Noël og kaflar úr Widor...
Messa sunnudaginn 11. desember kl 11. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar þjónar fyrir altari ásamt Magneu Sverrisdóttur. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkjuleiða messusönginn. Organisti er Hörður Áskelsson. Barnastarfið er í umsjá Ingu Harðardóttur, Ragnheiðar Bjarnadóttur og Guðjóns Andra Rabbevaag Reynissonar.
Kyrrðarstund er á sínum stað fimmtudaginn 8. desember kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Eftir stundina er svo seld súpa á vægu verði í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.
Starf eldri borgara í kórkjallaranum á þriðjudögum kl. 11.00 13.00. Leikfimi, súpa og spjall. Helga Þorvaldsdóttir og Mjöll Þórarinsdóttir sjá saman um samveruna.
Verið hjartanlega velkomin.
Þriðjudaginn 6. desember kl. 10.30 11.00 er fyrirbænamessa í kórkjallaranum. Dr. Sigurður Árni Þórðarson leiðir stundina. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja á kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.
Mánudaginn 5. desember er stutt bænastund í hádeginu kl. 12.15 12.30 sem Sigrún Ásgeirsdóttir leiðir. Stundin er inn í kirkju hjá myndinni af Maríu mey. Verið hjartanlega velkomin.
Jólatónlistarhátíð í Hallgrímskirkju 2016
Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju hefst nú um helgina en Mótettukór Hallgrímskirkju opnar hátíðina með fjölbreyttri dagskrá hlýlegrar aðventu- og jólatónlistar sem ætti að koma tónleikagestum í hátíðarskap.
Hallgrímskirkja mun iða af lífi og fjöri á aðventunni þar sem hver atburðurinn rekur annan...
Messa sunnudaginn 4. desember kl 11. Séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar þjónar fyrir altari ásamt séra Birgi Ásgeirssyni. Messuþjónar aðstoða. Karlakór Reykjavíkur syngur undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Barnastarfið er í umsjá Rósu Árnadóttur.