Fréttir

Kyrrðarstund í hádeginu

26.01.2016
Í kyrrðarstundinni 26. janúar leikur Björn Steinar Sólbergsson á orgelið og Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir  leiðir íhugun og biður bæn. Samveran hefst kl. 12.00 og er í hálftíma. Eftir stundina verður hægt að kaupa súpu og brauð á vægu verði. Allir hjartanlega velkomnir.

Árdegismessa

26.01.2016
Árdegismessa kl. 8. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson og messuþjónar þjóna. Morgunkaffi eftir messu. Verið hjartanlega velkomin.

Sunnudagsmessa og barnastarf 24. janúar kl. 11

21.01.2016
Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jón Dalbú Hróbjartssyni og messuþjónum. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja og organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Í lok messunar mun Jóhannes Pálmason, formaður sóknarnefndar, gera grein fyrir framlögum Hallgrímskirkju á árinu 2015 til Hjálparstarfs kirkjunnar og...

Kyrrðarstund í hádeginu á fimmtudögum

20.01.2016
Í kyrrðarstundinni 21. janúar leikur Björn Steinar Sólbergsson á orgelið og séra Jón Dalbú Hróbjartsson leiðir íhugun og biður bæn. Samveran hefst kl. 12.00 og er í hálftíma. Eftir stundina verður hægt að kaupa súpu og brauð á vægu verði. Allir hjartanlega velkomnir.

Foreldramorgnar í kórkjallara

19.01.2016
Foreldramorgnar eru í kórkjallaranum alla miðvikudagsmorgna kl. 10.00 – 12.00. Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi tekur vel á móti ykkur.

Árdegismessa

18.01.2016
Árdegismessa kl. 8. Dr. Sigurður Árni Þórðarson og messuþjónar þjóna. Morgunkaffi eftir messu. Verið hjartanlega velkomin.

Liðug á líkama og sál - fyrsta samvera á nýju ári

17.01.2016
Starf eldri borgara í kórkjallaranum á þriðjudögum kl. 11.00 – 13.00. Leikfimi, súpa og spjall. Helga Þorvaldsdóttir og Mjöll Þórarinsdóttir sjá saman um samveruna. Föstudagssamverur falla niður þessa önn. Verið hjartanlega velkomin alla þriðjudaga.

Fyrirbænamessa í kórkjallara

17.01.2016
Fyrirbænamessur eru haldnar í kórkjallaranum alla þriðjudaga kl. 10.30 - 11.00. Dr. Sigurður Árni Þórðarson, sóknarprestur Hallgrímskirkju, leiðir. Allir velkomir.

Hádegisbæn á mánudögum

17.01.2016
Í hádeginu á hverjum mánudegi kl. 12.15 leiðir Sigrún Ásgeirsdóttir kortérs bænastund þar sem allir eru velkomnir. Stundin er alltaf inn í kirkju hjá myndinni af Maríu mey. Verið velkomin til bænahalds.