Fréttir

Kyrrðarstund fimmtudaginn 27. september kl 12:00

26.09.2018
Fimmtudaginn 27. september  er kyrrðarstund í hádeginu kl. 12. Stundin er í hálftíma, inniheldur ljúft orgelspil og stutta hugleiðingu ásamt bæn. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir stundina og organisti er Björn Steinar. Eftir stundina er svo seld súpa og brauð í Suðursal kirkjunnar. Verið hjartanlega velkomin.

Árdegismessa á miðvikudögum

24.09.2018
Góð leið til þess að byrja daginn, árdegismessa kl. 8 á miðvikudögum. Sungið, beðið og hlýtt á stutta hugleiðingu í góðu samfélagi. Prestar og messuþjónar þjóna. Morgunmatur og kaffi eftir messu. sólarupprás Verið hjartanlega velkomin.

Krílasálmar 25. september kl. 12:30-13:30

24.09.2018
  Krílasálmar eru tónlistarstundir fyrir börn á aldrinum 3-18 mánaða og foreldra þeirra, þar sem tónlist er notuð til að styrkja tengslamyndun og örva þroska barnanna.  Það er sungið fyrir þau og spilað á hin ýmsu hljóðfæri, þeim vaggað, dansað með þeim og á þann hátt fá þau upplifun af tónlistinni sem hefur góð áhrif á tilfinninga- og...

Unga fólkið í aðalhlutverki

23.09.2018
Barna- og fjölskyldumessurnar eru einstaklega lifandi og skemmtilegar í kirkjunni hjá okkur. Í morgun var ein slíkra stunda þar sem fólk á öllum aldri sameinaðist í söng, bæn og skemmtilegheitum undir stjórn Ingu Harðardóttur æskulýðsfulltrúa og sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur. Unga fólkið raðaði sér á mottur fremst í kirkjunni í upphafi...

Fjölskyldumessa og barnastarf 23. september 2018, kl:11

21.09.2018
Fjölskyldumessa og barnastarf 23. september 2018, kl:11 17. sunnudagur eftir þrenningarhátíð Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og Inga Harðardóttir leiða stundina. Barna- og unglingakór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Helgu Vilborgar Sigurjónsdóttur. Elísabet Þórðardóttir leikur á orgel. Starfsfólk Sunnudagaskólans...

Ljósberi Hallgrímskirkju - Verði ljós

18.09.2018
Í Hallgrímskirkju er ljósberi með sætum fyrir bænakerti. Þangað leitar fólk og kveikir á kertum, vitjar ástvina í huganum og biður bænir. Á hnattlaga ljósberanum eru sæti fyrir 61 bænakerti. Í honum miðjum er stórt kerti sem er tákn fyrir heimsljós Guðs, Jesú Krist. Hallgrímskirkja er ekki aðeins mest myndaða hús og fjölsóttasti...

Sungið fyrir keppnisferð til Lettlands

14.09.2018
Mótettukórinn undirbýr þátttöku í alþjóðlegu kórakeppninni International Baltic Sea Choir Competition í Lettlandi, þar sem kórinn fær að syngja meðal frábærra kóra frá Rússlandi, Eistlandi, Lettlandi, Hvíta-Rússlandi, Litháen, Finnlandi og Indónesíu. Keppnin verður haldin í þriðja sinn í ár og fer fram dagana 21.–23. september, en eingöngu...

Vel mætt í kyrrðarstund og súpu

14.09.2018
Það var vel mætt í fyrstu kyrrðarstundina eftir sumarfrí í hádeginu gær. Björn Steinar Sólbergsson lék ljúfa tóna á orgelið og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir flutti hugvekju og bæn. Að kyrrðarstund lokinni var boðið upp á súpu, brauð og kaffi í Suðursal við góðar undirtektir gesta.

Dagur íslenskrar náttúru og messan

13.09.2018
Elskum við náttúruna? Er nátturan náungi okkar? Sunnudagurinn 16. september er dagur íslenskrar náttúru. Barnastarfið og messan verða kl. 11 og náttúrutengsl okkar verða íhuguð. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir og sr. Sigurður Árni Þórðarson þjóna fyrir altari og prédika í samtalsprédikun. Messuþjónar aðstoða. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson....