Árdegismessa á miðvikudegi kl. 8 í kór kirkjunnar. Messuþjónar flytja stutta hugvekju, leiða í bæn, forsöng og aðstoða við útdeilingu ásamt presti. Verið velkomin.
Á tónleikum Alþjóðlegs orgelsumars laugardaginn 8. ágúst og sunnudaginn 9. ágúst leikur svissneski orgelleikarinn Andreas Liebig, organisti dómkirkjunnar í Basel í Sviss.
Tónleikarnir á laugardeginum hefjast kl. 12.00 og kosta 2000 kr. Sunnudagstónleikarnir hefjast kl. 17.00 og kosta 2500 en miðar eru seldir við innganginn. Félagar í...
Í gleði og litadýrð sumarsins verður messað í Hallgrímskirkju sunnudaginn 9. ágúst kl. 11.00. Boðið verður upp á sögustund fyrir börnin í umsjá Ingu Harðardóttur æskulýðsfulltrúa og prestarnir Irma Sjöfn Óskarsdóttir og Leonard Ashford þjóna ásamt hópi messuþjóna. Organisti og kórstjóri er Hörður Áskelsson og félagar úr Mótettukór...
Á tónleikum Alþjóðlegs orgelsumar fimmtudaginn 6. ágúst kl. 12.00 leikur Ágúst Ingi Ágústsson organisti. Aðgangseyrir er 2000 kr. og miðar eru seldir við innganginn.
Miðvikudaginn 5. ágúst eru tónleikar Scola cantorum kl. 12.00 í Hallgrímskirkju. Flutt eru íslensk tónlist, þjóðlög og kórperlur. Aðgangseyrir er 2000 kr. og miðar seldir við innganginn.
Árdegismessa á miðvikudegi kl. 8 í kór kirkjunnar. Sr. Árni Svanur Daníelsson héraðsprestur þjónar og messuþjónar flytja stutta hugvekju, leiða í bæn og forsöng og aðstoða við útdeilingu.
Mesta ferðahelgi ársins er framundan en fyrir þau sem dvelja í borginni er boðið til messu og sögustundar fyrir börnin kl. 11.00 á sunnudaginn í Hallgrímskirkju. Hópur messuþjóna aðstoðar við helgihaldið og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir altari. Organisti og kórstjóri er Hörður Áskelsson og félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju...
Á tónleikum Alþjóðlegs orgelsumar fimmtudaginn 30. júlí leikur Eyþór Wechner Franzson organisti. Tónleikarnir hefjast kl. 12 og miðar eru seldir við innganginn.
Miðvikudaginn 29. júlí eru tónleikar Scola cantorum kl. 12.00 í Hallgrímskirkju. Flutt eru íslensk tónlist, þjóðlög og kórperlur. Aðgangseyrir er 2000 kr. og miðar seldir við innganginn.