Fréttir

Heimsins bestu íhugunarstaðir

26.05.2016
(function(){var h=this,aa=function(a){var b=typeof a;if("object"==b)if(a){if(a instanceof Array)return"array";if(a instanceof Object)return b;var c=Object.prototype.toString.call(a);if("=b};var ca=function(a,b,c,d,e){if(e)c=a+("&"+b+"="+c);else{var...

Vortónleikar Barna og unglingakórs Hallgrímskirkju og Barnakór Ísaksskóla - Sameiginlegir tónleikar í Ísaksskóla

26.05.2016
Barnakór Ísaksskóla og Barna og unglingakór Hallgrímskirkju halda sameiginlega vortónleika fimmtudaginn 26. maí. Tónleikarnir verða haldnir í sal Ísaksskóla við Bólstaðahlíð kl. 17.30. Kórstjóri beggja kóranna er Ása Valgerður Sigurðardóttir og píanóleikari er Björk Sigurðardóttir. Ókeypis aðgangur og verið velkomin. =)

Aðalfundur Kvenfélagsins

25.05.2016
Aðalfundur Kvenfélagsins verður haldinn fimmtudaginn 26. maí kl. 20 í suðursal kirkjunnar. Venjuleg aðalfundarstörf. Verið velkomin.

Foreldramorgnar í kórkjallara

24.05.2016
Foreldramorgnar eru í kórkjallara alla miðvikudagsmorgna kl. 10.00 – 12.00. Dagskrá: Opið hús. Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir taka vel á móti ykkur.

Árdegismessa

23.05.2016
Varla er til betri leið til þess að byrja daginn. Á miðvikudaginn kl. 8 er árdegismessa þar sem dr. Sigurður Árni Þórðarson og messuþjónar þjóna í sameiningu. Ljúf stund sem inniheldur söng, hugleiðingu og bænastund. Eftir messuna er morgunmatur og kaffi. Verið hjartanlega velkomin.

Liðug á líkama og sál

23.05.2016
  Starf eldri borgara í kórkjallaranum á þriðjudögum kl. 11.00 – 13.00. Leikfimi, súpa og spjall á boðstólunum. Á morgun er söngstund á dagskránni. Verið hjartanlega velkomin.

Fyrirbænamessa í kórkjallara

23.05.2016
Á morgun, þriðjudaginn 24. maí mun dr. Sigurður Árni Þórðarson leiða fyrirbænamessuna í kórkjallaranum kl. 10.30 – 11.00. Í messunni er beðið saman í góðu samfélagi. Allir velkomir.

Þrenningarhátíð - Messa og barnastarf sunnudaginn 22. maí kl. 11

20.05.2016
Sr. Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón með barnastarfinu hefur Inga Harðardóttir. Gleðilega þrenningarhátíð.

Kyrrðarstund á fimmtudögum

18.05.2016
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir flytur íhugun dagsins og Hörður Áskelsson leikur á orgelið á síðustu kyrrðarstund vorsins sem hefst kl. 12. Stundirnar taka svo aftur upp þráðinn í haust. Eftir stundina verður hægt að kaupa súpu og brauð á vægu verði í suðursalnum. Verið hjartanlega velkomin.